Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

219. fundur 26. nóvember 2026 kl. 08:15 - 09:27 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Eyþór Fannar Sveinsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Endurnýjun á samstarfssamning

Málsnúmer 2611187Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Flugu hf., rekstraraðila Reiðhallarinnar Svaðastaða á Sauðárkróki, dags. 20. nóvember 2026, þar sem óskað var eftir að samningur við Sveitarfélagið Skagafjörð um afnot og stuðning við rekstur reiðhallarinnar verði framlengdur. Núgildandi samningur gildir til 31. desember 2026. Í erindinu kom fram að samstarfið við sveitarfélagið undanfarin ár hefði reynst rekstri reiðhallarinnar afar mikilvægt og skapað forsendur fyrir traustum rekstri, skilum á skuldbindingum félagsins og nauðsynlegu viðhaldi og endurnýjun búnaðar. Jafnframt hefði stuðningurinn ýtt undir öflugt framlag stjórnar og annarra velunnara reiðhallarinnar og lagt grunn að farsælu samstarfi um rekstur mannvirkisins. Óskað var eftir áframhaldandi samstarfi á sambærilegum forsendum.

Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og telur reynslu af samstarfinu gefa góða ástæðu til áframhaldandi stuðnings við starfsemi Reiðhallarinnar Svaðastaða.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera nýjan fimm ára samning við Flugu hf., til 31. desember 2031, á grundvelli núgildandi samnings og með sambærilegum skilmálum. Sveitarstjóra er falið að setja upp samningsdrög og leggja fyrir byggðarráð að nýju til samþykktar.

2.Nýr rammasamningur um höfundarréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga

Málsnúmer 2611059Vakta málsnúmer

Lögð fram kynning á rammasamningi STEFs og Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH) við Samband íslenskra sveitarfélaga um opinberan tónflutning í starfsemi sveitarfélaga.

Byggðarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að meta hagkvæmni samningsins fyrir Skagafjörð með hliðsjón af núverandi kostnaði og leyfismálum einstakra stofnana sveitarfélagsins.

Sýni greiningin fram á að aðild feli í sér hagræði og bætta réttarstöðu fyrir sveitarfélagið er sviðsstjóra falið að undirrita samning við STEF á grundvelli rammasamningsins og upplýsa byggðarráð um framgang málsins.

3.Fundargerðir öldungaráðs

Málsnúmer 2601066Vakta málsnúmer

Málinu er vísað frá 48. fundi félagsmála- og tómstundanefndar frá 5. nóvember sl. Þá lagði félagsmála- og tómstundanefnd til við byggðarráð að taka til umfjöllunar tillögu öldungaráðs um breytingu á 2. gr. samþykkta ráðsins, þess efnis að seta í öldungaráði verði launuð.

Byggðarráð bendir á að um greiðslu þóknana til nefndarmanna gildir V. kafli sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Samkvæmt 1. mgr. 51. gr., sbr. 1. mgr. 53. gr. laganna, er sveitarstjórn skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum hæfilega þóknun samkvæmt reglum sveitarfélagsins. Jafnframt kveður 2. mgr. 6. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 á um að kostnaður af starfi öldungaráðs greiðist af hlutaðeigandi sveitarfélögum í hlutfalli við íbúafjölda.

Með vísan til ofangreindra málsástæðna samþykkir byggðarráð samhljóða að seta í öldungarráði beri þóknun í samræmi við samþykkt sveitarfélagsins um kjör og þóknanir kjörinna fulltrúa og nefndarmanna. Greitt verði fyrir hvern fund, þó ekki fleiri en 2 fundi á ári. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að uppfæra samþykktir til samræmis við ákvörðun þessa.

4.Aðventuhátíð Skagafjarðar 2026

Málsnúmer 2611096Vakta málsnúmer

Deildarstjóri miðlunar, þróunar og menningar óskar eftir heimild til að loka gatnamótum fyrir bílaumferð laugardaginn 28. nóvember nk. frá kl. 15:00 - 17:00 vegna tendrunar jólatrés.

Um er að ræða eftirfarandi gatnamót:
- Skólastígur/Skagfirðingabraut
- Hlíðarstígur/Skagfirðingabraut
- Aðalgata/Sævarstígur
- Aðalgata/Bjarkastígur

Byggðarráð samþykkir umbeðna götulokun samhljóða fyrir sitt leiti og að uppfylltum öðrum tilskyldum leyfum, ásamt því að hjáleiðir verði vel merktar.

5.Reykjarhólsvegur 4A F229-7147 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2611171Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-077310, dagsett 18. nóvember 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Fóts ehf. kt. 670215-1480, Maríubakka 10, 109 Reykjavík um leyfi til reksturs Gististaðar í flokki II - C Minna gistiheimili að Reykjarhólsvegi 4A, F229-7147, 561 Varmahlíð fyrir allt að 4 gesti.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina.

6.Ásgarður eystri F231-4627 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2611173Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-077566, dagsett 19. nóvember 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn ÁMG ehf., kt. 591297-4659, Lýsubergi 14, 815 Þorlákshöfn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - C Minna gistiheimili að Ásgarði eystri, F231-4627, 551 Sauðárkróki fyrir allt að 10 gesti.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina.

7.Umsagnarbeiðni; Stefnumótandi byggðaáætlun 2027-2041

Málsnúmer 2611115Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 313. mál - Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. nóvember nk.

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar framlagningu stefnumótandi byggðaáætlunar og tekur undir framtíðarsýn hennar um blómlegar byggðir í öllum landshlutum, jafnt aðgengi að grunnþjónustu og fjölbreytt atvinnutækifæri. Sérstaklega er mikilvægt að við framkvæmd áætlunarinnar verði horft til svæða sem glíma við lýðfræðilegar áskoranir, einhæfni atvinnulífs og langar vegalengdir til þjónustu.

Fjármögnun verður að fylgja markmiðum
Byggðarráð telur stærsta veikleika tillögunnar vera ósamræmi milli metnaðarfullra markmiða hennar og þeirrar fjármögnunar sem tryggð er til framkvæmdar. Í greinargerð tillögunnar kemur fram að samþykkt hennar feli ekki ein og sér í sér fjárveitingu og að framkvæmd einstakra aðgerða sé háð fjárlögum og fjármálaáætlun hverju sinni. Jafnframt sýna fjárhæðir sem tilgreindar eru við aðgerðir aðeins framlag byggðaáætlunar en ekki heildarkostnað við framkvæmd þeirra.

Byggðarráð telur þetta ófullnægjandi. Metnaðarfull byggðastefna án tryggrar fjármögnunar er að takmörkuðu leyti framkvæmanleg stefna og í raun varla stefna heldur fremur viljayfirlýsing. Með samþykkt byggðaáætlunar þurfi því jafnframt að liggja fyrir trúverðug fjármögnunaráætlun fyrir aðgerðir hennar. Þar komi fram áætlaður heildarkostnaður hverrar aðgerðar, framlag byggðaáætlunar, fjármögnun ábyrgðarráðuneytis og eftir atvikum annarra aðila, auk þess sem skýrt verði hvaða fjárheimildir séu þegar tryggðar.

Byggðarráð leggur ríka áherslu á að sveitarfélögum verði ekki falin ný verkefni, þjónusta eða fjárhagsleg ábyrgð á grundvelli áætlunarinnar nema að undangengnu fullnægjandi kostnaðarmati og að varanleg fjármögnun fylgi. Sama eigi við þegar tímabundnum þróunarverkefnum er ætlað að verða að varanlegri þjónustu. Þá verði tryggt að fjármunum sé ekki dreift svo víða að þeir dugi aðeins til greiningar og undirbúnings en ekki raunverulegrar framkvæmdar.
Byggðastefna getur ekki byggst á því að ríkið setji markmiðin en sveitarfélögin beri kostnaðinn af framkvæmd þeirra. Fjármögnun þarf að fylgja stefnu og ábyrgð.

Fjarskipti verði skilgreind sem öryggisinnviðir
Byggðarráð Skagafjarðar vekur sérstaka athygli á stöðu farsímasambands í dreifbýli samhliða útfösun 2G- og 3G-farsímakerfanna. Þótt í byggðaáætlun sé sett það markmið að tryggja trausta fjarskiptainnviði um allt land skortir markvissa aðgerð í aðgerðaáætlun áranna 2027-2031 til að tryggja fullnægjandi farsímasamband þar sem breytingar á fjarskiptakerfum hafa leitt til skertrar þjónustu.

Traust fjarskipti eru grundvallaröryggisinnviðir fyrir íbúa, atvinnulíf og viðbragðsaðila og hafa sérstaka þýðingu í landstóru sveitarfélagi á borð við Skagafjörð. Byggðarráð leggur því áherslu á að sett verði fram fullfjármögnuð aðgerð um eflingu farsímasambands og fjarskiptaöryggis í dreifbýli.

Samgöngur innan landstórra sveitarfélaga
Byggðarráð fagnar áherslum aðgerða A.7 og A.8 um almenningssamgöngur milli byggða og þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Aðstæður í Skagafirði sýna vel mikilvægi þess að líta á samgöngur milli byggðarkjarna og dreifbýlis sem hluta af grunnþjónustu. Sérstaklega þarf að tryggja þátt ríkisins í fjármögnun almenningssamgangna og frístundaaksturs þannig að landstór sveitarfélög beri ekki ein kostnað af því að jafna aðgengi íbúa að þjónustu.

Byggðarráð fagnar jafnframt aðgerð A.9 um umferðarminni tengivegi en leggur áherslu á að hún leiði ekki eingöngu til endurskoðunar hönnunarstaðla. Nauðsynlegt er að niðurstöðunni fylgi aukið fjármagn í samgönguáætlun og mælanleg hröðun lagningar bundins slitlags á tengivegi.

Opinber störf og byggðasjónarmið við ákvarðanir ríkisins
Byggðarráð styður aðgerðir B.1-B.3 um óstaðbundin störf og staðarval ríkisstarfa. Byggðasjónarmið verða þó að gilda jafnt þegar ný ríkisstarfsemi er stofnuð og þegar núverandi stofnanir eru sameinaðar, endurskipulagðar eða verkefni færð milli starfsstöðva. Markmiðið hlýtur að vera raunveruleg fjölgun fjölbreyttra sérfræði- og stjórnunarstarfa á landsbyggðinni en ekki aðeins breyting á vinnufyrirkomulagi.

Byggðarráð telur jafnframt mikilvægt að árangur verði birtur eftir landshlutum. Heildarfjölgun starfa utan höfuðborgarsvæðisins segir lítið um árangur byggðastefnu ef störfin safnast fyrst og fremst á afmarkað svæði nærri höfuðborginni.

Byggðarráð fagnar jafnframt þeirri þróun sem fram kemur í greinargerð tillögunnar varðandi Hóla og fyrirhugaðan flutning höfuðstöðva rannsóknarsetra til Skagafjarðar. Slík uppbygging er gott dæmi um hvernig ríkið getur með meðvitaðri staðsetningu sérhæfðra verkefna fjölgað þekkingarstörfum og styrkt samfélög og atvinnulíf á landsbyggðinni.

Landbúnaður og verðmætasköpun
Skagafjörður er eitt öflugasta landbúnaðarhérað landsins og byggðarráð leggur því sérstaka áherslu á að aðgerð B.10 um nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði leiði til raunverulegra aðgerða. Aðgerðin verði fjármögnuð með fullnægjandi hætti og nýtt til að bæta aðgengi að lánsfé, þróa stuðningskerfi og endurskoða þær reglur sem kunna að hindra nýliðun og kynslóðaskipti.

Sóknaráætlanir og aukið ákvörðunarvald heim í hérað
Byggðarráð styður eindregið þá stefnu C.15 að efla svæðisbundna þróunargetu og sóknaráætlanir landshluta. Ef færa á ábyrgð og framkvæmd verkefna nær íbúum þarf fjármagnið og ákvörðunarvaldið að fylgja. Það samræmist illa markmiðum nýrrar byggðaáætlunar ef framlög til sóknaráætlana eru skert á sama tíma og þeim er ætlað aukið hlutverk.

Byggðarráð leggur því áherslu á að fjármögnun sóknaráætlana verði tryggð til lengri tíma, framlög haldi að lágmarki raungildi sínu og aukið fjármagn verði fært til landshlutanna til ráðstöfunar á grundvelli staðbundinnar þekkingar og forgangsröðunar.

Byggðalinsa verði raunverulegt stjórntæki
Byggðarráð fagnar því að tillagan geri ráð fyrir að byggðasjónarmið verði metin við stefnumótun, lagafrumvörp, fjárfestingarákvarðanir og breytingar á opinberri starfsemi.

Mikilvægt er þó að þetta verði meira en almenn yfirlýsing. Byggðarráð leggur til að áður en ríkið tekur ákvarðanir sem geta haft veruleg áhrif á störf, grunnþjónustu, samgöngur eða kostnað íbúa verði byggðaáhrif metin eftir landshlutum, haft samráð við viðkomandi sveitarfélög áður en ákvörðun er tekin og í rökstuðningi gerð grein fyrir hvernig tekið hafi verið tillit til niðurstöðu matsins.

Samræmi við aðrar áætlanir og stefnur
Byggðarráð leggur áherslu á að framlögð stefnumótun til byggðaáætlunar tali við aðrar stefnur og áætlanir ríkisins, þar með talið samgönguáætlun og fjármálaáætlun. Mikilvægt er að samræmi sé í þessum áætlunum og þær styðji hver aðra.

8.Samráð; Drög að reglugerð um neysluvatn

Málsnúmer 2611167Vakta málsnúmer

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 237/2026, "Drög að reglugerð um neysluvatn".

Umsagnarfrestur er til og með 08.12.2026.

Fundi slitið - kl. 09:27.