Reykjarhólsvegur 4A F229-7147 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2611171
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 98. fundur - 24.11.2026
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 18. nóvember 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-077310. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Þorbjargar Friðriksdóttur f.h. Fótar ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II - C minna gistiheimili í sumarhúsi, F2297147 sem stendur á lóðinni númer 4A við Reykjarhólsveg í Varmahlíð. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.