Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

98. fundur 24. nóvember 2026 kl. 14:00 - 14:45 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Víðidalur 1 L240159 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2605269Vakta málsnúmer

Emil Þór Guðmundsson byggingartæknifræðingur sækir f.h. Péturs Helga Stefánssonar og Grétu Sjafnar Guðmundsdóttur um leyfi til að byggja geymsluhúsnæði og saunahús á lóðinni Víðidalur 1, L240159. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir númer BN03, BN04 og BN05, dagsettir 16.09.2026, breytt 19.06.2026. Byggingarnar falla undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt, byggingarheimild veitt.

2.Suðurgata 13 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2102273Vakta málsnúmer

Sigþrúður Jóna Harðardóttir og Sveinþór Ari Arason sækja um endurnýjun áður samþykktra byggingaráforma frá 116. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Skagafjarðar 9. mars 2021. Umsókn um breytingu á útliti og innra skipulagi einbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 13 við Suðurgötu á Sauðárkróki. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt, byggingarleyfi veitt.

3.Garðhús land L179275 - Umsókn um breytta notkun

Málsnúmer 2611145Vakta málsnúmer

Þorsteinn Frímann Guðmundsson og Rósa Mary Þorsteinsdóttir sækja um leyfi til að breyta notkun húsnæðis sem stendur á lóðinni Garðhús land, L179275 í íbúðarhúsnæði. Húsið skráð vistheimili í fasteignaskrá HMS. Framlagður uppdráttur gerður hjá Kollgátu af Ingólfi Frey Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur í verki 12_26_034, númer 100, dagsettur 02.11.2026 gerir grein fyrir umbeðinni breyttri notkun. Erindið samþykkt.

4.Reykjarhólsvegur 4A F229-7147 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2611171Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 18. nóvember 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-077310. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Þorbjargar Friðriksdóttur f.h. Fótar ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II - C minna gistiheimili í sumarhúsi, F2297147 sem stendur á lóðinni númer 4A við Reykjarhólsveg í Varmahlíð. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Fundi slitið - kl. 14:45.