Fara í efni

Endurnýjun á samstarfssamning

Málsnúmer 2611187

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 219. fundur - 26.11.2026

Lagt fram erindi frá Flugu hf., rekstraraðila Reiðhallarinnar Svaðastaða á Sauðárkróki, dags. 20. nóvember 2026, þar sem óskað var eftir að samningur við Sveitarfélagið Skagafjörð um afnot og stuðning við rekstur reiðhallarinnar verði framlengdur. Núgildandi samningur gildir til 31. desember 2026. Í erindinu kom fram að samstarfið við sveitarfélagið undanfarin ár hefði reynst rekstri reiðhallarinnar afar mikilvægt og skapað forsendur fyrir traustum rekstri, skilum á skuldbindingum félagsins og nauðsynlegu viðhaldi og endurnýjun búnaðar. Jafnframt hefði stuðningurinn ýtt undir öflugt framlag stjórnar og annarra velunnara reiðhallarinnar og lagt grunn að farsælu samstarfi um rekstur mannvirkisins. Óskað var eftir áframhaldandi samstarfi á sambærilegum forsendum.

Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og telur reynslu af samstarfinu gefa góða ástæðu til áframhaldandi stuðnings við starfsemi Reiðhallarinnar Svaðastaða.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera nýjan fimm ára samning við Flugu hf., til 31. desember 2031, á grundvelli núgildandi samnings og með sambærilegum skilmálum. Sveitarstjóra er falið að setja upp samningsdrög og leggja fyrir byggðarráð að nýju til samþykktar.