Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

88. fundur 26. júní 2026 kl. 08:30 - 09:30 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Holtsmúli L145981 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2605207Vakta málsnúmer

Ómar Pétursson byggingarfræðingur sækir f.h. Eyþórs Dalmanns Sigurðssonar og Fanneyjar Daníelsdóttur um leyfi til að byggja við einbýlishúsi sem stendur á jörðinni Holtsmúla, L145981, ásamt því að endurnýja glugga. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Nýhönnun af umsækjanda. Uppdrættir númer A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 11.05.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

2.Eyrarvegur 21 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2606159Vakta málsnúmer

Hallur Kristmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Kaupfélags Skagfirðinga um leyfi til að gera breytingar á húsnæði Vörumiðlunar sem stendur á lóðinni númer 21 við Eyrarveg á Sauðárkróki. Breytingarnar varða útlit, innangerð skrifstofuhluta neðrihæðar og efrihæð. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Nordic Office of Architecture af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26006, númer A-100, A-101, A-102, A-103, A-104 og A-105, dagsettir 05.06.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

3.Brennigerði L145923 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2606186Vakta málsnúmer

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. FISK-Seafood ehf. um leyfi til að rífa hús sem stendur á jörðinni Brennigerði, L145923. Um er að ræða mhl. 02, 146 fermetra íbúðarhús byggt árið 1965, sambyggt mhl. 13. Framlagður uppdráttur gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdráttur í verki 71420102, númer S-01, dagsettur 16.06.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

4.Háeyri 6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2606187Vakta málsnúmer

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. FISK-Seafood ehf. um leyfi til að rífa 198,4 fermetra aðstöðuhús, byggt árið 1998 sem stendur á lóðinni númer 6 við Háeyri á Sauðárkróki. Framlagður uppdráttur gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdráttur í verki 49351003, númer S-01, dagsettur 12.06.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

5.Syðra-Malland land L179396 - Umsókn um að fjarlæga mannvirki af lóð.

Málsnúmer 2606222Vakta málsnúmer

Ásgrímur Gísli Ásgrímsson eigandi lóðarinnar Syðra-Malland land, L179396 sækir um leyfi til að fjarlægja 54.2 fermetrar sumarhús sem stendur á lóðinni, byggt árið 1997. Fyrir hugað er að flytja húsið á lóðina Höfn 5, L176166 í Hvalfjarðarsveit. Erindið samþykkt, leyfi veitt.

Fundi slitið - kl. 09:30.