Eyrarvegur 21 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2606159
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 88. fundur - 26.06.2026
Hallur Kristmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Kaupfélags Skagfirðinga um leyfi til að gera breytingar á húsnæði Vörumiðlunar sem stendur á lóðinni númer 21 við Eyrarveg á Sauðárkróki. Breytingarnar varða útlit, innangerð skrifstofuhluta neðrihæðar og efrihæð. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Nordic Office of Architecture af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26006, númer A-100, A-101, A-102, A-103, A-104 og A-105, dagsettir 05.06.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.