Fara í efni

Brennigerði L145923 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2606186

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 88. fundur - 26.06.2026

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. FISK-Seafood ehf. um leyfi til að rífa hús sem stendur á jörðinni Brennigerði, L145923. Um er að ræða mhl. 02, 146 fermetra íbúðarhús byggt árið 1965, sambyggt mhl. 13. Framlagður uppdráttur gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdráttur í verki 71420102, númer S-01, dagsettur 16.06.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.