Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

87. fundur 12. júní 2026 kl. 13:30 - 14:45 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Stóru-Akrar II Land L207335 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2604040Vakta málsnúmer

Vigfús Halldórsson byggingarfræðingur sækir f.h. Hallbjörns Ægis Björnssonar, Sigurðar Þórs Björnssonar, Birnu Sólveigar Björnsdóttur og Sólveigar Sigurðardóttur um leyfi til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni Stóru-Akrar II Land, L207335. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26-01, númer A100, A101, A102 og A001 dagsettir 13.04.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt, byggingarheimild veitt.

2.Steindyr L172591 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2606004Vakta málsnúmer

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Erlings Jóhannessonar, Huldu Garðarsdóttur, Jóhannesar G. Erlingssonar og Dagnýar Sverrisdóttur um leyfi til að byggja við sumarhús sem stendur á lóðinni Steindyr, L172591. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í vekri HA26166, númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 20.05.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

3.Helgustaðir L223795 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2606016Vakta málsnúmer

Guðmundur Þór Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Guðjóns Sveins Magnússonar og Helgu Óskarsdóttur um leyfi til að byggja sauðfjárskýli í landi Helgustaða, L223795 í Hegranesi. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 1225, númer 01, 02 og 03., dagsettir 22.11.2025 og 05.12.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

4.Hafgrímsstaðir L146169 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2605193Vakta málsnúmer

Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur sækir f.h. Austari ehf. um leyfi fyrir starfsmannabúðum á jörðinni Hafgrímsstöðum, L146169 sem nýtt verða fyrir starfsmenn flúðasiglinga sem eru með aðstöðu á jörðinni. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 77650001, númer A-100, A-101, A-102 og A-103, dagsettir 04.05.2026. Fyrir liggur samþykki landeiganda. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

5.Faxatorg, Menningarhús - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2605067Vakta málsnúmer

Birgir Teitsson arkitekt sækir f.h. sveitarfélagsins Skagafjarðar um leyfi til að byggja Menningar- og varðveisluhús á lóðinni Faxatorg, L143322 á Sauðárkróki, ásamt tengibyggingu við Safnahús og endurgerð þess. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Arkís arkitektum af umsækjanda. Uppdrættir í verki 25-058, númer 2.00.00, 2.00.01, 2.00.02, 2.00.03 og 2.00.04, dagsettir 26.02.2026, ásamt brunavarnaruppdrætti gerðum á Verkís verkfræðistofu af Guðmundi Ámundasyni verkfræðingi í verki 25150, númer U81.001, U81.101, U81.105 og U81.201, dagsettir 13.02.2026, breytt 21.05.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

Fundi slitið - kl. 14:45.