Fara í efni

Faxatorg, Menningarhús - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2605067

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 87. fundur - 12.06.2026

Birgir Teitsson arkitekt sækir f.h. sveitarfélagsins Skagafjarðar um leyfi til að byggja Menningar- og varðveisluhús á lóðinni Faxatorg, L143322 á Sauðárkróki, ásamt tengibyggingu við Safnahús og endurgerð þess. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Arkís arkitektum af umsækjanda. Uppdrættir í verki 25-058, númer 2.00.00, 2.00.01, 2.00.02, 2.00.03 og 2.00.04, dagsettir 26.02.2026, ásamt brunavarnaruppdrætti gerðum á Verkís verkfræðistofu af Guðmundi Ámundasyni verkfræðingi í verki 25150, númer U81.001, U81.101, U81.105 og U81.201, dagsettir 13.02.2026, breytt 21.05.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.