Fara í efni

Hafgrímsstaðir L146169 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2605193

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 87. fundur - 12.06.2026

Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur sækir f.h. Austari ehf. um leyfi fyrir starfsmannabúðum á jörðinni Hafgrímsstöðum, L146169 sem nýtt verða fyrir starfsmenn flúðasiglinga sem eru með aðstöðu á jörðinni. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 77650001, númer A-100, A-101, A-102 og A-103, dagsettir 04.05.2026. Fyrir liggur samþykki landeiganda. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.