Fara í efni

Varmahlíðarskóli auglýsir tímabundið starf stuðningsfulltrúa

18.09.2017

 Varmahlíðarskóli auglýsir tímabundið starf stuðningsfulltrúa

 

Tímabil: 4. október 2017 til 31. maí 2018.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður í skóla með stuðning.

Lýsing á starfinu: Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð í skólanum. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði þessara nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum. Verkefni og aðstæður geta verið krefjandi.

Menntunar- og hæfniskröfur: Góð færni í mannlegum samskiptum, aðlögunarhæfni og samstarfsvilji. Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu og/eða reynsla af sambærilegu starfi er kostur.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2017

Nánari upplýsingar: Hanna Dóra Björnsdóttir, skólastjóri Varmahlíðarskóla, í síma 455 6023 eða hannadora@varmahlidarskoli.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og drefibýli í framanverðum Skagafirði. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt, fjölbreytt og sveigjanlegt starf með nemendum, foreldrum, starfsmönnum og grenndarsamfélaginu. Nám er kjarni skólastarfsins og efling náms er meginviðfangsefni starfsmanna skólans. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á hreyfingu og heilbrigða lífshætti.