Fara í efni

Umsóknarfrestur fyrir sérstakan frístundastyrk framlengdur

02.03.2021

Frestur  til að sækja um sérstakan styrk fyrir börn vegna íþrótta- eða tómstundaiðkunnar á skólaárinu 2020-2021, hefur verið framlengdur til 15. apríl 2021.

Styrkurinn er veittur grunnskólabörnum sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí árið 2020.

Styrkurinn er að hámarki 45.000 krónur fyrir hvert barn sem stundar skipulagt íþrótta- og/eða tómstundastarf undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda. Athugið að hægt er að koma með kvittanir fyrir íþrótta- og tómstundastarfi sem greitt var fyrir í upphafi skólaárs, eða frá hausti 2020.

Frekari upplýsingar um styrkhæfi er að finna á island.is. Sótt er um styrkinn inná Íbúgátt sveitarfélagsins.

 

Sjá tengda frétt um sérstakan frístundastyrk hér.