Fara í efni

Tímabundið starf í Fellstúni 19b er laust til umsóknar

29.05.2017

Tímabundið starf er laust til umsóknar í búsetuþjónustu við Fellstún 19b

Framlengdur umsóknarfrestur

 

Tímabil starfs: Júní 2017 - 31. ágúst 2017, eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II

Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér aðstoð við fatlaðan einstakling við athafnir daglegs lífs. Ásamt því að sinna félagslegum jafns sem líkamlegum þörfum eftir því sem við á.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að kvenkyns einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum, þó ekki á næturna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti: sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.