Fara í efni

Tímabundið hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar

30.10.2017

 Tímabundið hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar

 

Tímabil starfs: 13. nóvember til 13. febrúar 2018, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Starfshlutfall: 75% starfshlutfall.

Starfsheiti: Liðveisla II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar blindan einstakling í nágrenni Varmahlíðar. Starfið felst m.a. í aðstoð við athafnir daglegs lífs og félagslegum stuðningi. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fötluðu fólki og hefur að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttsemi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjandi skal hafa náð 18 ára aldri.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti; sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsókn, ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Félagsleg liðveisla miðar að því að aðstoða einstakling við athafnir daglegs líf sem og til þátttöku í félagslífi. Markmiðið er að auka þátttöku einstaklings í samfélaginu á sínum forsendum og draga úr félagslegri einangrun.