Fara í efni

Tímabundið hlutastarf í Kleifatúni er laust til umsóknar

25.04.2017

Tímabundið hlutastarf er laust til umsóknar í búsetuþjónustu við Kleifatún

 

Tímabil starfs: 15. maí 2017-30. apríl 2018.

Starfshlutfall: 50% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér aðstoð við fatlaðan einstakling við athafnir daglegs lífs. Ásamt því að sinna félagslegum jafnt sem líkamlegum þörfum eftir því sem við á.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti, sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.