Fara í efni

Tímabundið hlutastarf er laust til umsóknar í búsetuþjónustu við Kleifatún

18.07.2017

 Tímabundið hlutastarf er laust til umsóknar í búsetuþjónustu við Kleifatún

 

Tímabil starfs: 1. sept 2017- 31. maí 2018, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Starfshlutfall: 50% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.

Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér aðstoð við fatlaðan einstakling við athafnir daglegs lífs. Ásamt því að sinna félagslegum jafns sem líkamlegum þörfum eftir því sem við á. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólahringinn.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti, sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.