Fara í efni

Sundlaugin á Hofsósi óskar eftir sundlaugarverði

03.07.2018

Sundlaugin á Hofsósi óskar eftir sundlaugarverði

 

Tímabil starfs: Sem fyrst og til 26. ágúst 2018.

Starfshlutfall: 75% starfshlutfall.

Starfsheiti: Sundlaugarvörður I.

Lýsing á starfinu: Starfið felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá og laug, auk eftirlits með öryggiskerfum, afgreiðsla og baðvarsla.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund. Lögð er áhersla á stundvísi, samstarfsvilja og háttvísi. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Reynsla er kostur og björgunarsundpróf er æskilegt. Hreint sakavottorð skv. æskulýðslögum.

Vinnutími: Vaktavinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, í síma 660-4639 eða með tölvupósti; valdi@skagafjordur.is.

Ásdís Garðarsdóttir, vakstjóri sundlaugarinnar á Hofsósi, í síma 848-8328 eða með tölvupósti; disagardars@gmail.com

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um starfið.