Fara í efni

Sumarstörf: Sambýlið á Hvammstanga

10.03.2017

Sumarstörf 2017

Fjölskyldusvið - Málefni fatlaðs fólks

Framlengdur umsóknarfrestur

Sambýlið á Hvammstanga

Fjöldi og starfshlutfall: 3 störf í 100% starfshlutfalli.

Tímabil: 15. maí til 31. ágúst (2 störf) og 1. júní til 31. ágúst (1 starf).

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna.

Launkjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur: er til og með 19. mars 2017.

Nánari upplýsingar: Jón Ingi Björgvinsson, forstöðumarður, mfhv@simnet.is; 893-3840.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.