Fara í efni

Sumarstörf: Kleifatún, Fellstún 19b og Freyjugata 18

10.03.2017

Sumarstörf 2017

Fjölskyldusvið - Málefni fatlaðs fólks

Framlengdur umsóknarfrestur

 

Kleifatún

Tímabil: 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 2 störf í 95% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Ryensla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

 

Fellstún 19b

Tímabil: 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 1 starf í 100% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Lýsing á starfinu: Í starfinu flest aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að kvenkyns starfsmanni sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Dag- og kvöldvaktir, einnig um helgar.

Launakjör: Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

 

Freyjugata 18

Tímabil: 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 1 starf í 45% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Félagsleg liðveisla II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar einstaklinga með fötlun. Starfið felst meðal annars í því að leiðbeina einstaklingnum við að stýra daglegu lífi og auka færni sína og sjálfstæði.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fólki með fötlun og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Dagvaktir, einnig um helgar.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

 

Umsóknarfrestur allra starfanna er framlengdur til og með 19. mars 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.