Fara í efni

Sumarstörf í Iðju/dagþjónustu

08.05.2017

Sumarstörf 2017

Fjölskyldusvið - Málefni fatlaðs fólks

Framlengdur umsóknarfrestur

 

Iðja/dagþjónusta

Tímabil: 1. júní til 31. ágúst, eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 1 starf í u.þ.b. 90% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á hæfingarstöð.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

 

Iðja/dagþj – liðveisla í vinnuverkefnum

Tímabil: 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 1 starf í 20% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á hæfingarstöð.

Lýsing á starfinu: Starfið er þjónustustarf sem felur í sér stuðning við þjónustuþegann á hinum almenna vinnumarkaði.


Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Dagvinna.

Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2017

Launakjör: Störfin henta konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar: Jónína Gunnarsdóttir, forstöðumaður, idja@skagafjordur.is, 453-6853.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.