Fara í efni

Sumarstörf: Dagdvöl aldraðra

02.05.2017

Sumarstörf 2017

Fjölskyldusvið

Framlengdur umsóknarfrestur

 

Dagdvöl aldraðra

 

Tímabil & starfshlutföll: 1 starf í 45% starfshlutfalli frá 1. júní til 15. júlí 2017.  2 störf í 60-80% starfshlutfalli frá 1. júní til 31. ágúst.

Starfsheiti: Starfsmaður við dagvist aldraðra (aðhlynning og félagsstarf).

Lýsing á starfinu: Starfar við aðhlynningu á dagvist þar sem aldraðir einstaklingar koma inn yfir daginn og fá aðstoð við böðun og aðra persónulega þjónustu. Í starfinu felst einnig aðstoð við félagsstarf og tómstundaiðju.

 Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum með ríka samstarfs- og samskiptahæfileika. Virðing í mannlegum samskiptum er skilyrði. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund, dugnað, stundvísi, jákvæðni, ábyrgðakennd og hæfni til að tileinka sér nýjungar. Menntun og reynsla er kostur.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Störfin henta konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2017

Nánari upplýsingar: Elísabet Pálmadóttir, forstöðumaður, elisabet@skagafjordur.is, 453-5909 / 692-5909.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

 

Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði við fólk sem að staðaldri þarf eftirlit og aðstoð við athafnir daglegs lífs til að geta búið áfram heima eins lengi og kostur er.

Dagdvölin er til húsa í Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks en er rekin af Sveitarfélaginu Skagafirði. Opið er alla virka daga frá kl. 08:30 – 15:30. Þar er boðið upp á ýmiskonar afþreyingu s.s. sund og æfingar í Endurhæfingarstöð HS, föndur og spil.