Fara í efni

Sumarstörf á sambýlinu og í Iðju á Blönduósi

19.04.2017

Sumarstörf 2017

Fjölskyldusvið - Málefni fatlaðs fólks - Blönduós

Framlengdur umsóknarfrestur

 

 

Sambýlið á Blönduósi

Tímabil: 15. maí til 30. september eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 3 störf í 100% starfshlutfalli og 1 starf í 65% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli fatlaðra III.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.

 

Sambýlið á Blönduósi – Iðja/dagþjónusta

Tímabil: 17. júlí til 25. ágúst eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall:1 starf í 100% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli fatlaðra III.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Dagvinna.


 

Launakjör: Störfin henta konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2017

Nánari upplýsingar: Turid Rós Gunnarsd., forstöðumaður, sambyli@felahun.is, 852-8960.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.