Fara í efni

Sumarstörf á Blönduósi

01.06.2017

Sumarstörf 2017

Fjölskyldusvið - Málefni fatlaðs fólks – Blönduós

Framlengdur umsóknarfrestur

 

Sambýlið á Blönduósi

Tímabil starfs: Júní til loka september eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 2 störf í 100% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli fatlaðra III.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.

Launakjör: Störfin henta konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2017.

Nánari upplýsingar: Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður, arijohann@skagafjordur.is, 452-4960.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.