Fara í efni

Sumarstörf 2018 - Byggðasafn Skagfirðinga

12.02.2018

Sumarstörf 2018

 

Byggðasafn Skagfirðinga

 

Tímabil & starfshlutfall:  1 starf í 100% starfshlutfalli, tímabilið 15. apríl – 20. október. 7 störf í100% starfshlutfalli, tímabilið 20. maí – 20. september

Starfsheiti: Safnvörður I.

Starfsstöðvar: Safnahús og sýningarrými í Glaumbæ, (gamli torfbærinn, Áshús, Gilsstofa og aðstöðuhús við bílastæði).

Lýsing á starfinu: Starfsmaður tekur á móti og leiðsegir gestum, annast vörslu safnmuna, þrif og staðarvörslu.

Hæfniskröfur: Forsenda ráðningar er áhugi á sögu, þjóðminjum og samskiptum við fólk. Góð tungumálakunnátta er æskileg. Því fleiri tungumál því betra. Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum. Lögð er áhersla á lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 17 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 14. mars 2018

Nánari upplýsingar: Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri, bsk@skagafjordur.is, 453-6173.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.