Fara í efni

Sumar - Dagdvöl aldraðra

15.03.2018

Sumarstörf 2018

Fjölskyldusvið – Dagdvöl aldraðra

 

Starfshlutfall & tímabil:  1 starf í 78% starfshlutfalli tímabilið 1. júní til  31. ágúst 2018.

1 starf í 72% starfshlutfalli tímabilið 1. júní til  31. ágúst 2018.

1 starf í 48% starfshlutfalli tímabilið 22. maí til  30. september 2018.

Starfsheiti: Starfsmaður við dagvist aldraðra (aðhlynning og félagsstarf).

Lýsing á starfinu: Starfar við aðhlynningu á dagdvöl þar sem aldraðir einstaklingar koma inn yfir daginn og fá aðstoð við böðun og aðra persónulega þjónustu. Í starfinu felst einnig aðstoð við félagsstarf og tómstundaiðju.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er eftir einstaklingum með ríka samstarfs- og samskiptahæfileika. Virðing í mannlegum samskiptum er skilyrði. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund, dugnað, stundvísi, jákvæðni, ábyrgðakennd og hæfni til að tileinka sér nýjungar. Menntun og reynsla er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Elísabet Pálmadóttir, forstöðumaður, elisabet@skagafjordur.is, 453-5909/692-5909.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt  sveitarfélagsins sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.

  

Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði við fólk sem að staðaldri þarf eftirlit og aðstoð við athafnir daglegs lífs til að geta búið áfram heima eins lengi og kostur er.

Dagdvölin er til húsa í Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks en er rekin af Sveitarfélaginu Skagafirði. Opið er alla virka daga frá kl. 08:30 – 15:30. Þar er boðið upp á ýmiskonar afþreyingu s.s. sund og æfingar í Endurhæfingarstöð HSN, föndur og spil.