Fara í efni

Sumar 2018 - Heimilið Fellstúni 19b

01.03.2018

Sumarstörf 2018

Heimilið Fellstúni 19b, Sauðárkróki óskar eftir kvenkyns starfsmönnum

 

Tímabil: 25. maí - 25. ágúst 2018.

Fjöldi & starfshlutfall: 2 störf í 50-95% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna. (Dag-, kvöld- og helgarvaktir.)

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2018

Nánari upplýsingar: Ragnheiður M. Rögnvaldsdóttir, forstöðumaður, ragnheidurr@skagafjordur.is  453-6070.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.