Fara í efni

Starfsmaður óskast í þjónustu við fatlað fólk

09.01.2018

 Starfsmaður óskast í þjónustu við fatlað fólk

 

Upphaf starfs: 25. janúar 2018 eða eftir samkomulagi. Um framtíðarstarf er að ræða.

Starfshlutfall: 75% starfshlutfall.

Starfsstöð: Suðurgata og Freyjugata.

Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlaða II.

Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna (ekki næturvaktir).

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2018

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, í síma 867-9809 eða sigthrudur@skagafjörður.is.

Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, í síma 770-7355 eða ragnheidura@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar sem og konur eru hvattir til að sækja um.