Fara í efni

Staða varaslökkviliðsstjóra er laus til umsóknar

03.11.2017

Brunavarnir Skagafjarðar óska eftir að ráða varaslökkviliðsstjóra. Starfið er laust frá og með 1. desember 2017. Starfsemi Brunavarna Skagafjarðar heyrir undir sveitarstjóra. Varaslökkviliðsstjóri er staðgengill slökkviliðsstjóra. Hann ber ábyrgð á faglegri starfsemi Brunavarna Skagafjarðar í samvinnu við slökkviliðsstjóra. Er með umsjón og tekur þátt í þjálfun slökkviliðsins. Sér um daglegt eldvarnareftirlit, sinnir úttektum og yfirferð uppdrátta í samvinnu við slökkviliðsstjóra. Telst til vakthafandi liðsheildar og sinnir útköllum þegar þörf er á. Sinnir ýmsum verkefnum s.s. ráðgjöf og fræðslu. Starfar í samræmi við lög, reglugerðir, starfslýsingu og reglur sveitarfélagsins.

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og laga nr. 75/2000 um brunamál.
  • Vera með löggildingu sem slökkviliðsmaður og sjúkraflutningamaður. Hafa lokið námi fyrir eldvarnareftirlitsmenn frá Mannvirkjastofnun (I og II) og hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið. Stjórnendanámskeið frá Mannvirkjastofnun er kostur. Gerð er krafa um iðnmenntun eða sambærilega menntun.
  • Hafa starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður.
  • Umsækjendur skulu hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að gangast undir ítarlega læknisskoðun og þrekpróf.
  • Reynsla af stjórnun er rekstri er æskileg.
  • Framúrskarandi leiðtoga- og stjórnunarhæfni ásamt færni í mannlegum samskiptum og samstarfsvilja. Sjálfstæði í störfum, auk góðrar skipulagshæfni, sveigjanleika, víðsýni og vilja til að tileinka sér nýjungar. Umsækjendur þurfa að geta starfað undir álagi.
  • Góð almenn tölvukunnátta. Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.             
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur sveitarfélagsins.

Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánari upplýsingar veitir Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri, í síma 453-5425 eða með tölvupósti svavaratli@skagafjordur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2017

Umsókn þarf að fylgja prófskírteini, leyfisbréf, sakavottorð og ljósrit af ökuskírteini og ökuferilskrá. Jafnframt þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um.

Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.