Fara í efni

Skráningu í Vinnuskólann stendur yfir og lýkur 29. maí

25.05.2022

Við viljum minna á að nú stendur yfir skráning í Vinnuskóla Sveitarfélagsins Skagafjarðar, en skráningu lýkur sunnudaginn 29.maí.

Vinnuskólinn verður starfandi í sumar frá þriðjudeginum 7. júní til föstudagsins 12. ágúst að báðum dögum meðtöldum. Leitast er við að veita öllum 13 til 16 ára unglingum búsettum í Skagafirði aðgang í skólann. Árgangarnir sem í hlut eiga eru fæddir á árunum 2009, 2008, 2007 og 2006, nemendur sem eru að ljúka 7.-10. bekk. Vinnutíminn er 40 klukkustundir eða 2 vinnuvikur hjá yngsta árgangi, 120 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2008 eða 4 heilar vinnuvikur, 180 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2007 eða 6 heilar vinnuvikur og 240 klukkustundir hjá elsta hópnum eða 8 vikna tímabil. Mæting er kl. 08:00 fyrsta vinnudag í bækistöð vinnuskólans að Sæmundargötu 7b (Hús frítímans). Vinnuskólanum lýkur með lokahófi.

Upplýsingar um skráningu, laun, reglur skólans o.s.frv. er að finna hér heimasíðu sveitarfélagsins. Jafnframt er hlekkur á Vinnuskólann á forsíðu heimasíðunnar.