Fara í efni

Skráning hafin í Vinnuskóla Skagafjarðar

04.05.2022

Nú stendur yfir skráning í Vinnuskóla Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Vinnuskólinn verður starfandi sumarið 2022 frá þriðjudeginum 7. júní til föstudagsins 12. ágúst að báðum dögum meðtöldum. Leitast er við að veita öllum 13 til 16 ára unglingum búsettum í Skagafirði aðgang í skólann. Árgangarnir sem í hlut eiga eru fæddir á árunum 2009, 2008, 2007 og 2006, nemendur sem eru að ljúka 7.-10. bekk. Vinnutíminn er 40 klukkustundir eða 2 vinnuvikur hjá yngsta árgangi, 120 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2008 eða 4 heilar vinnuvikur, 180 klukkustundir fyrir ungmenni fædd árið 2007 eða 6 heilar vinnuvikur og 240 klukkustundir hjá elsta hópnum eða 8 vikna tímabil. Mæting er kl. 08:00 fyrsta vinnudag í bækistöð vinnuskólans að Sæmundargötu 7b (Hús frítímans). Vinnuskólanum lýkur með lokahófi. 

Upplýsingar um skráningu, laun, reglur skólans o.s.frv. er að finna hér heimasíðu sveitarfélagsins. Jafnframt er hlekkur á Vinnuskólann á forsíðu heimasíðunnar.