Fara í efni

Skipulagslýsing - Staðarbjargavík Hofsósi

28.02.2024

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 23. fundi sínum þann 21. febrúar 2024 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir Staðarbjargavík, Hofsósi, Skagafirði skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð nr. SL01 dags. 02.02.2024 unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu.

Skipulagssvæðið afmarkast af Suðurbraut og óstaðfestum lóðamörkum Suðurbrautar 18 að norðan, beinni línu milli Suðurbrautar og sjávar að austan, strandlínu að sunnanverðu og línu frá sjó að Suðurbraut 18. Afmörkun svæðisins er unnin með hliðsjón af gögnum á hugmyndastigi varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir. Svæðið er um 13.164 m² að stærð. Viðfangsefni fyrirhugaðs deiliskipulags verður að fjalla um landnotkun og uppbyggingu á skipulagssvæðinu með tilliti til þeirrar sérstöðu sem það hefur varðandi landslag og sem aðdráttarafl fyrir gesti. Fjallað verður um fyrirætlanir um nýtingu auðlindarinnar innan svæðisins með áherslu á þau gildi sem hverfisverndin setur á svæðið og öryggi fólks sem þarna kemur.

Skipulagslýsingin er auglýst frá 28. febrúar til og með 22. mars 2024. Hægt er að skoða skipulagslýsinguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 210/2024. Lýsingin mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðu Skagafjarðar.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi skipulagslýsinguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 210/2024 í síðasta lagi 22. mars 2024. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar

 

Skipulagslýsing - Staðarbjargavík Hofsósi