Skagfirskar leiguíbúðir hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúðar til leigu á Sauðárkróki í Almenna íbúðakerfinu
10.06.2025
Um er að ræða 95,7 m2 íbúð með þremur svefnherbergjum á efri hæð Laugatúns 21.
Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Stjórn Skagfirskra leiguíbúða hses. úthlutar íbúðunum samkvæmt forgangsröðun Skagfirskra leiguíbúða hses. eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir.
Tekið skal fram að hunda- og kattahald er ekki leyfilegt í leiguhúsnæði Skagfirskra leiguíbúða.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á leiguibudir@skagafjordur.is eða til Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21. Endurnýja þarf áður innsendar umsóknir ef áhugi er fyrir hendi að senda inn nýja umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025.
Umsóknir og nánari upplýsingar er að finna hér.