Fara í efni

Skagfirskar leiguíbúðir hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúðar í almenna íbúðaleigukerfinu

14.03.2023

Um er að ræða eina tveggja herbergja íbúð, Laugatún 21 nh. á Sauðárkróki.

Markmið Skagfirskra leiguíbúða hses. er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar leiguíbúðir við upphaf leigu, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda. Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Almennum íbúðum er úthlutað til þriggja ára í senn samkvæmt forgangsröðun Skagfirskra leiguíbúða hses. Stjórn Skagfirskra leiguíbúða hses. úthlutar íbúðunum eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir.

Tekið skal fram að hunda- og kattahald er ekki leyfilegt í leiguhúsnæði Skagfirskra leiguíbúða.

Umsóknir skulu berast á leiguibudir@skagafjordur.is eða til Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21. Með umsókninni skal fylgja afrit af nýjasta skattframtali og afrit af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda. Endurnýja þarf áður innsendar umsóknir ef áhugi er fyrir hendi að senda inn nýja umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2023.

Umsóknir og nánari upplýsingar má finna með því að smella hér. Einnig er tekið við fyrirspurnum á netfangið leiguibudir@skagafjordur.is.