Fara í efni

Skagfirskar leiguíbúðir hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúða í almenna íbúðaleigukerfinu

01.11.2021

Skagfirskar leiguíbúðir hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúða í almenna íbúðaleigukerfinu.

Um er að ræða tvær þriggja herbergja íbúðir, Laugatún 21 eh. og 25 eh. og eina tveggja herbergja íbúð, Laugatún 21 nh. á Sauðárkróki.

Markmið Skagfirskra leiguíbúða hses. með byggingu almennra íbúða er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar leiguíbúðir við upphaf leigu, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.

Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016.

Almennum íbúðum er úthlutað til þriggja ára í senn samkvæmt forgangsröðun Skagfirskra leiguíbúða hses. Stjórn Skagfirskra leiguíbúða hses. úthlutar íbúðunum eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir. 

Umsóknir skulu berast til Ráðhússins á Sauðárkróki. Með umsókninni skal fylgja afrit af skattframtali 2021 og afrit af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda. Endurnýja þarf áður innsendar umsóknir ef áhugi er fyrir hendi að senda inn nýja umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2021.

Umsóknir og frekari upplýsingar er að finna hér, en einnig má  senda fyrirspurnir á netfangið leiguibudir@skagafjordur.is.