Fara í efni

Skagfirskar leiguíbúðir hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúða í almenna íbúðaleigukerfinu

30.10.2019

Skagfirskar leiguíbúðir hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúða í almenna íbúðaleigukerfinu.

Um er að ræða tvær tveggja herbergja og sex þriggja herbergja íbúðir að Laugatúni 21, 23, 25 og 27 á Sauðárkróki.

Markmið Skagfirskra leiguíbúða hses. með byggingu almennra íbúða er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar leiguíbúðir við upphaf leigu, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.

Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016.

Almennum íbúðum er úthlutað til þriggja ára í senn samkvæmt forgangsröðun Skagfirskra leiguíbúða hses. Stjórn Skagfirskra leiguíbúða hses. úthlutar íbúðunum eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir. Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar í ársbyrjun 2020.

Umsóknir skulu berast til ráðhússins á Sauðárkróki. Með umsókninni skal fylgja afrit af síðasta skattframtali og afrit af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2019.

Umsóknir og frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is undir linknum "Umsóknir & eyðublöð". Tekið er við fyrirspurnum á netfangið leiguibudir@skagafjordur.is