Fara í efni

Sálfræðingur

04.05.2018

Upphaf starfs: 1. ágúst 2018 eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfssvið: Starfið er hvoru tveggja á sviði skólaþjónustu og félagsþjónustu. Helstu verkefni eru sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum, ráðgjöf við foreldra og starfsmenn leik- og grunnskóla ásamt þverfaglegu starfi í skóla, félagsþjónustu og barnavernd.

Menntunarkröfur: Sálfræðimenntun og löggildingu til að starfa sem sálfræðingur.

Hæfniskröfur:Þekking á þroska og þroskafrávikum barna. Reynsla af sálfræðilegri greiningu og ráðgjöf vegna barna. Þekking og reynsla af ráðgjöf í barnaverndar- og fjölskyldumálum. Reynsla af starfi skólasálfræðings er kostur.

Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni.  Umsækjandi þarf jafnframt að hafa góða vitund fyrir sjálfum sér, ríka ábyrgðartilfinningu, vera tilbúinn til að tileinka sér nýjar hugmyndir, hafa metnað í starfi, jákvæður og sýna af sér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og frumkvæði. Sérfræðingar fjölskyldusviðs starfa mikið saman í teymum þvert á fagstoðir og stofnanir og viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að starfa með öðrum á lausnamiðaðan hátt. Viðkomandi þarf að hafa bílpróf.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur sveitarfélagsins.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Sálfræðingafélag Íslands.

Umsóknarfrestur: Er til og með 27. maí 2018.

Nánari upplýsingar:Herdís Á. Sæmundardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, í síma 455 6088 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið has@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Afrit af prófskírteinum þurfa að fylgja umsóknum. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf).  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.