Nýkjörin sveitarstjórn hefur hafið störf
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Skagafjarðar fór fram í gær, miðvikudaginn 3. júní, og hefur því ný sveitarstjórn nú formlega hafið störf á nýju kjörtímabili 2026–2030.
Kosið var í ráð og nefndir sveitarfélagsins en Sveinn Þ. Finster Úlfarsson var kjörinn forseti sveitarstjórnar, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir fyrsti varaforseti og Einar Eðvald Einarsson annar varaforseti. Eyþór Fannar Sveinsson var kjörinn formaður byggðarráðs og Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaformaður. Jafnframt var Einar Eðvald Einarsson kjörinn aðalmaður og Högni Elfar Gylfason áheyrnarfulltrúi.
Skipan annarra fastanefnda er sem hér segir:
- Aðalmenn atvinnu-, menningar- og kynningarnefnda eru Davíð Logi Jónsson, Guðbjörg Konráðsdóttir og Sylvía Sif Halldórsdóttir. Áheyrnarfulltrúi er Hreiðar Örn Steinþórsson.
- Aðalmenn félagsmála- og tómstundanefndar eru Jakob Logi Gunnarsson, Guðrún Sonja Birgisdóttir og Halldór Jón Sigurðsson. Áheyrnarfulltrúi er Sædís Bylgja Jónsdóttir.
- Aðalmenn í fræðslunefnd eru Jóhanna Ey Harðardóttir, Rósanna Valdimarsdóttir og Elfa Björk Víðisdóttir. Áheyrnarfulltrúi er Sigurlína Erla Magnúsdóttir.
- Aðalmenn landbúnaðar- og innviðarnefndar eru Guðlaugur Skúlason, Elínborg Erla Ásgeirsdóttir og Atli Már Traustason. Áheyrnarfulltrúi er Högni Elfar Gylfason.
- Aðalmenn skipulagsnefndar eru Ingvar Daði Jóhannsson, Jón Daníel Jónsson og Jódís Helga Káradóttir. Áheyrnarfulltrúi er Helga Þórsdóttir.
Á fundinum var einnig staðfestur ráðningarsamningur við Magnús Barðdal Reynisson sem sveitarstjóra Skagafjarðar.
Ítarlegri upplýsingar um skipan í ráð og nefndir má nálgast hér.