Fara í efni

Nafnasamkeppni – nýjar götur í frístundabyggð við Varmahlíð

06.07.2023

Samhliða auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar við Varmahlíð óskar Skagafjörður eftir tillögum frá íbúum um heiti á nýjum götum A og B sem skilgreindar eru í skipulaginu, sjá skipulagsuppdrátt og mynd. Hægt er að skila inn tillögum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu ráðhússins eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is til 16. ágúst n.k.

Frístundabyggð við Varmahlíð - Auglýsing
Frístundabyggð við Varmahlíð - Tillaga að deiliskipulagi
Frístundabyggð við Varmahlíð - Greinargerð, tillaga