Fara í efni

Leikskólakennarar óskast til starfa við Leikskólann Birkilund í Varmahlíð

08.05.2017

 Leikskólakennarar óskast til starfa við Leikskólann Birkilund í Varmahlíð

 

Upphaf starfs: 14. ágúst 2017 eða eftir samkomulagi.

Fjöldi og starfshlutfall: 3 stöður í 100% starfshlutfalli eða eftir samkomulagi.

Starfsheiti: Leikskólakennari.

Vinnutími: Dagvinna.

Lýsing á starfinu: Leikskólakennari starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla og stefnu sveitarfélagsins. Vinnur að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildastjóra. Fylgist með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Menntunarkröfur: Leyfi til að nota starfsheitið leikskólakennari. Ef ekki berst umsókn frá leikskólakennara sem uppfyllir menntunarköfur er heimilt að ráða leiðbeinanda.

Hæfniskröfur: Umsækjendur þurfa að búa yfir færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði, sjálfstæði og hafa faglegan metnað fyrir starfi sínu. Kennarar og starfsfólk leikskólans þurfa að vinna að uppeldi og menntun barnanna í samræmi við Aðalnámskrá leikskólans og geta unnið í nánu samstarfi við stjórnendur leikskólans. Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum er æskileg. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2017

Nánari upplýsingar: Steinunn Arnljótsdóttir, leikskólastjóri, birkilundur@skagafjordur.is, 453-8215.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá, prófskírteini og leyfisbréfi skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Í Birkilundi er unnið með SMT skólafærni og Stig af stigi. Birkilundur er í samstarfsverkefni  með Varmahlíðarskóla þar sem áhersla er lögð á félagsleg samskipti.

Leikskólinn Birkilundur er starfræktur í tveimur húsum. í Birkilundi eru þrjár deildir með 39 börn á aldrinum 1-6 ára.