Fara í efni

Laus störf í Fellstúni

08.08.2018

Framtíðarstarf:                 82% starfshlutfall frá 9. september 2018 eða eftir samkomulagi.

Tímabundið starf:           23% starfshlutfall í helgarvinnu, tímabilið 17. september 2018 – 31. maí 2019.

 

Starfsheiti:                      Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.

Lýsing á starfinu:            Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur:          Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur:                  Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.  Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.

Vinnutími:                         Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Launakjör:                          Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur:           Er til og með 27. ágúst 2018.

Nánari upplýsingar:       Edda Haraldsdóttir, forstöðumaður, 453-6692, fellstun@skagafjordur.is.

Umsóknir:                          Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.