Fara í efni

Laus störf

14.03.2019

Nú er verið að auglýsa sumarstörfin hjá sveitarfélaginu og mörg og fjölbreytt störf í boði auk þess sem auglýst er eftir framtíðarstarfsmönnum í Dagdvöl aldraðra og leikskólann Birkilund. Einnig er laus staða til eins árs í Fellstúni með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Veitu- og framkvæmdasvið auglýsir eftir starfsmönnum í þjónustumiðstöð og til starfa hjá Skagafjarðarveitum frá miðjum maí til loka ágústs eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 17. mars.

Byggðasafn Skagfirðinga auglýsir eftir safnvörðum í fullt starf og er ráðningartímabilið samkomulagsatriði en um er að ræða tímabilið frá miðjum maí fram í miðjan október. Umsóknarfrestur er til og með 17. mars.

Brunavarnir Skagafjarðar auglýsa fullt starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns tímabilið júní-ágúst og er umsóknarfrestur til og með 20. mars.

 Fjölskyldusvið í málefnum fatlaðra auglýsir störf á nokkrum starfsstöðvum, Iðja dagþjónusta, Fellstún, Kleifatún, Suðurgata og liðveisla. Í boði eru störf í dagvinnu 25-100% sem og vaktavinnu 50-100% tímabilið júní-ágúst eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 21. mars.

Heimili fyrir fatlað fólk á Hvammstanga auglýsir eftir starfsmönnum í fullt starf í vaktavinnu júní-ágúst eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur til og með 20. mars 

Heimili fyrir fatlað fólk á Blönduósi auglýsir eftir starfsmönnum í mismunandi starfshlutfall tímabilið júní-ágúst eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars.

Frekari upplýsingar má nálgast hér á heimasíðunni.