Fara í efni

Iðja/dagþjónusta auglýsir hlutastarf laust til umsóknar

14.06.2017

Iðja/dagþjónusta auglýsir hlutastarf laust til umsóknar

 

Upphaf starfs: 1. ágúst 2017 eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall: 50% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður á hæfingarstöð.

Lýsing á starfinu: Starfið er tvíþætt og felur í sér stuðning við fatlað fólk á hinum almenna vinnumarkaði og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum einstaklinga við athafnir daglegs lífs í Iðju. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2017

Nánari upplýsingar: Jónína Gunnarsdóttir, forstöðumaður, idja@skagafjordur.is, 453-6853.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

 Iðja er vinnustaður þar sem fullorðið fatlað fólk vinnur að fjölbreyttum verkefnum. Hún er staðsett við Sæmundarhlíð á Sauðárkróki.

Markmið Iðju eru:

  • Að viðhalda og efla færni og hæfni fatlaðs fólks til að starfa og taka þátt í daglegu lífi.
  • Að gefa fötluðu fólki kost á að sækja dagþjónustu við hæfi utan heimilis.
  • Að búa fatlað fólk undir að starfa á almennum vinnumarkaði.