Fara í efni

Íbúafundur á Hofsósi 3. apríl

01.04.2019
Yfirlitsmynd sem sýnir afmörkun verndarsvæðis á Hofsósi

Boðað er til íbúafundar í félagsheimilinu Höfðaborg miðvikudaginn 3. apríl kl. 17:30 til kynningar á verkefninu verndarsvæði í byggð á Hofsósi. Sveitarfélagið hlaut styrk frá Minjastofnun Íslands árið 2015 til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð á Sauðárkróki og Hofsósi.

 Verkefnið skiptist í húsakönnun, fornleifaskráningu og greinargerð þar sem metið er varðveislugildi og gerðir skilmálar um vernd og uppbyggingu innan svæðisins.

Verkefnið byggist á lögum sem sett voru árið 2015 um verndarsvæði í byggð og er tilgangur þeirra að stuðla að verndun einstakra bæjarhluta í kaupstöðum og bæjum landsins með það að markmiði að vernda menningarsögulegt og listrænt gildi einstakra bæjarhluta um ókomna tíð.

Á fundinum verður kynnt staða verkefnisins, varðveislumat, verndarskilmálar  og möguleikar til uppbyggingar.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta.

Nánar má kynna sér verkefnið hér.