Fara í efni

Grunnskólinn austan Vatna óskar eftir að ráða starfsmann til starfa

16.08.2017

Grunnskólinn austan Vatna óskar eftir að ráða starfsmann til starfa

 

Upphaf starfs: 1. september 2017 eða eftir samkomulagi.

Starfsstöð: Grunnskólinn á Hólum í Hjaltadal.

Starfsheiti: Skólaliði (með ræstingu) og starfsmaður í skóla með stuðning.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall. Skiptist í skólaliða (85%) og stuðningur (15%).

Lýsing á starfi: Skólaliðar annast gæslu nemenda í frímínútum og eyðutímum auk þrifum á húsnæði. Starfsmaður í skóla með stuðning starfar með nemendum. Meðal verkefna eru félagslegur stuðningur og þjálfun.

Hæfniskröfur: Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð. Hæfni til að vinna í hópi. Reynsla og áhugi á að starfa með börnum er kostur.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2017

Nánari upplýsingar:Jóhann Bjarnason, skólastjóri, í síma 865-5044 eða johann@gsh.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Grunnskólinn austan Vatna kennir á þremur starfsstöðum; Hofsósi Hólum og Sólgörðum. Þær voru sameinaðar í eina stofnun 1. ágúst 2007. Á Hólum og Sólgörðum eru nemendur í 1. – 7. bekk. Á Hofsósi eru nemendur frá 1. – 10. bekk, en starfsstöð þar er jafnframt safnskóli fyrir aðrar starfsstöðvar frá 8. – 10. bekk. Veturinn 2016-2017 voru 73 nemendur skráðir í skólann. Þar af eru 48 nemendur á Hofsósi, 18 nemendur á Hólum og 7 nemendur á Sólgörðum. Skólinn hefur um nokkurt skeið lagt áherslu á kennslu og vinnu með nýsköpun og eflingu heimabyggðar. Hann er grænfánaskóli og nú nýverið líka heilsueflandi grunnskóli.