Fara í efni

Garðyrkjufræðingur óskast

12.02.2018

Garðyrkjufræðingur óskast

 

Tímabil starfs: 1. mars til 30. september 2018.

Starfshlutfall: 100%.

Starfsheiti: Garðyrkjufræðingur II (m. flokkstjórn).

Vinnutími: Dagvinna.

Lýsing á starfinu: Er staðgengill garðyrkjustjóra og leysir garðyrkjustjóra af í forföllum. Stjórnun og stýring verkefna og eða vinnuhópa er vinna hjá garðyrkjudield. Umhirða og viðhald verkefna garðyrkjudeildar.

Menntunarkröfur: Garðyrkjufræðingur úr Landbúnaðarháskóla Íslands (sveinspróf) eða sambærileg menntun.

Hæfniskröfur: Reynsla af störfum í garðyrkju er æskileg. Reynsla af verkstjórn er kostur. Almenn tölvukunnátta. Almenn ökuréttindi. Lögð er áhersla á frumkvæði, gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2018

Nánari upplýsingar: Helga Gunnlaugsdóttir, garðyrkjustjóri, helga@skagafjordur.is, 861-3490.

Umsóknir: Umsóknum ásamt ferilskrá og prófskírteini skal skila í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.

 

Hlutverk garðyrkjudeildarinnar á sumrin er almenn garðyrkjuvinna, viðhald gróðurs, göngustíga, leiksvæða og grænna svæða sveitarfélagsins.