Fara í efni

Fyrsti fundur samráðshóps um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra 13. maí sl.

15.05.2026

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra fundaði í fyrsta sinn þann 13. maí sl., en þetta ráð hefur það markmið að gæta hagsmuna fólks með fötlun á þessu svæði. Í ráðinu sitja þrír fulltrúar sem kosnir eru af sveitarstjórnum Húnabyggðar, Húnaþings vestra og Skagafjarðar. Það eru síðan hagsmunasamtök fatlaðs fólks sem tilnefna þrjá fulltrúa. Starfsmenn ráðsins eru stjórnendur málaflokksins hjá fyrirgreindum sveitarfélögum.

Fundir samráðshópsins eru fyrst og fremst hugsaðir sem vettvangur samstarfs og þróunar um hagsmuni fatlaðs fólks. Markmið með starfi samráðshópsins er að bæta þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra með virkri aðkomu þess að skipulagi og mótun þjónustunnar í samstarfi við sveitarstjórnir auk ráða og nefnda.

Vert er að nefna að Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra og gætir ráðið hagsmuna einstaklinga innan þess svæðis.

Fundargerð ráðsins má sjá hér.