Fara í efni

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

1. fundur 13. maí 2026 kl. 12:30 - 15:00 Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Elísa Ósk Ómarsdóttir fulltrúi Þroskahjálpar
  • Gunnar Heiðar Bjarnason fulltrúi ÖBÍ
  • Grímur Rúnar Lárusson fulltrúi Húnabyggðar
Starfsmenn
  • Alma Dögg Guðmundsdóttir ráðgjafi
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leiðtogi
  • Sara Lind Kristjánsdóttir félagsmálastjóri
  • Margrét Eyjólfsdóttir starfsmaður NPA
  • Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri

Gréta Sjöfn setti fundinn og gerði tillögu að því að Sigurður Þór skrifaði fundargerð og var það samþykkt. Gunnar Heiðar gerði tillögu að því að Gréta Sjöfn stýrði fundi og var það samþykkt.

1. Hlutverk samráðshópsins.
Gréta Sjöfn kynnti reglur fyrir samráðshópa í öðrum sveitarfélögum en ekki hafa verið settar reglur um störf þessa hóps. Hópurinn leggur til að settar verði reglur fyrir samráðshópinn.
Ræddar voru breytingar á skipulagi réttindagæslu fatlaðs fólks. Rætt var um sýnileika á réttindum fatlaðs fólk og einfalda aðgengi á heimasíðum sveitarfélaganna að þeim. Rætt var um samstarf við heilbrigðiskerfið. Rætt var um aðgengismál og akstursþjónustu.


2. Innra eftirlit og samræming á þjónustu við fatlað fólk.
Alma Dögg kynnti eftirlit með þjónustu við fatlað fólk. Ytra eftirlit er í höndum Gæða- og eftirlitsstofunar og innra eftirlit er á höndum sveitarfélagsins. Skagafjörður vinnur að gerð handbókar og samræmingu innra eftirlits með gátlista sem stefnt er á að nýta á landsvísu.