Fara í efni

Framtíðarstörf á heimili fatlaðs fólks - Fellstún

05.04.2018

 Framtíðarstörf á heimili fatlaðs fólks - Fellstún

 

Upphaf starfs: 94% starf er laust nú þegar og þarf umsækjandi að geta byrjað sem fyrst.

98% starf er laust frá og með 16. júlí, eða eftir samkomulagi.

Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.  Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Edda Haraldsdóttir, forstöðumaður, 453-6692, fellstun@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf).

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.