Fara í efni

Framlengdur umsóknarfrestur um stöður kennara í Varmahlíðarskóla í málmsmíði og textíl

07.06.2018

Umsóknarfrestur um stöður kennara í málmsmíði- og textíl við Varmahlíðarskóla hefur verið framlengdur til og með 25. júní. Í starfi kennara í málmsmíði felst kennsla á unglingastigi og í textílkennslunni felst kennsla á öllum aldursstigum skólans. Menntunarkröfur eru grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna FG. Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir skólastjóri Varmahlíðarskóla í síma 898 6698 eða hannadora@varmahlidarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní og skal skila umsókn ásamt prófskírteini og leyfisbréfi í gegnum íbúagátt Sveitarfélagsins Skagafjarðar eða gegnum heimasíðuna skagafjordur.is