Fara í efni

Framlengdur frestur til að skila inn athugasemdum við breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021

07.02.2019
Sveitarfélagsuppdráttur

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 6. febrúar 2019 að framlengja frest til að skila ábendingum og athugasemdum við tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021, ásamt umhverfisskýrslu. Framlengdur frestur er til 25. febrúar 2019.

Í tillögu felst (A) lega Blöndulínu 3 (raflína), (B) færsla á legu Sauðárkrókslínu, (C) áframhaldandi frestun á skipulagi fyrir virkjanakosti í Skagafirði, (D) urðunarsvæði við Brimnes er fellt út, (E) nýtt tengivirki og lega jarðstrengs á Sauðárkróki, (F) ný efnistökusvæði vegna framkvæmda og (G) stækkun iðnaðarsvæðis við Varmahlíð.

Tillagan gerir grein fyrir forsendum breytinganna, útfærslu og umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 105/2006.

Nálgast má skipulagsgögnin hér á heimasíðunni, í ráðhúsi sveitarfélagsins á Sauðárkróki og hjá Skipulagsstofnun.

Ábendingum og athugasemdum við tillögu að aðalskipulagsbreytingum skal skila til skipulags- og byggingarfulltrúa á netfangið jobygg@skagafjordur.is eða senda í pósti merkt Aðalskipulag Skagafjarðar, Sveitarfélagið Skagafjörður, Skagfirðingabraut 17-19, 550 Sauðárkróki fyrir mánudaginn 25. febrúar 2019.